Fréttir

Innritun á haustönn lokið

Innritun nýnema á haustönn 2025 er nú lokið og skólinn fullsetinn. Þeir sem hafa áhuga á skólavist í MS á næstu önnum eru hvattir til að fylgjast með á heimasíðu skólans við annarskil.

Sumarfrí

Síðasti opnunardagur skrifstofu skólans er þriðjudagurinn 24. júní. Skrifstofan opnar aftur 6. ágúst kl. 10. Lesa meira...

Skrifstofa skólans verður lokuð mánudaginn 16. júní

Skrifstofa skólans verður lokuð mánudaginn 16. júní. Hægt er að senda fyrirspurnir á msund@msund.is. Skrifstofan opnar aftur miðvikudaginn 18. júní kl. 8:00.

Úthlutun úr Sprotasjóði 2025

Menntaskólinn við Sund hlaut styrk í úthlutun Sprotasjóðs 2025 fyrir verkefnið Grípum tækifærið - gervigreind í skólastarfi. Mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson, og formaður stjórnar sjóðsins, Bragi Þór Svavarsson, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu miðvikudaginn 11. júní. Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga og var gervigreind eitt af áherslusviðum sjóðsins í ár. Lesa meira...

Brautskráning stúdenta 31. maí 2025

Í dag brautskráðust 194 stúdentar frá Menntaskólanum við Sund við hátíðlega athöfn í Háskólabíó. Nemendur útskrifuðust af tveimur námsbrautum: náttúrufræðibraut og félagsfræðabraut. Af náttúrufræðibraut brautskráðust 73 nemendur, þar af 52 af líffræði- og efnafræðilínu og 21 af eðlisfræði- og stærðfræðilínu. Af félagsfræðabraut brautskráðust 121 nemandi, 45 af félagsfræði- og sögulínu og 76 af hagfræði- og stærðfræðilínu.

Námsmatssýning á vorönn 2025

Lokaeinkunnir vorannar hafa verið birtar í Innu. Námsmatssýning vorannar verður haldin mánudaginn 26. maí. Á námsmatssýningu gefst nemendum tækifæri til þess að sjá námsmatið og gera athugasemdir. Fyrirkomulag námsmatssýningarinnar verður með tvenns konar móti: annars vegar í skólanum og hins vegar í gegnum TEAMS. Nemendur skulu því kynna sér upplýsingarnar hér mjög vel.

Fardagur og dimmisjón

Það er alltaf ljúfsár tími á vorin þegar útskriftarnemar kveðja skólann sinn. Á fardegi ríkti hátíðleg stemning í Menntaskólanum við Sund þegar útskriftarnemar mættu prúðbúnir í skólann sinn á síðasta kennsludegi vorannar. Á kveðjuathöfn í sal skólans fluttu fulltrúar nemenda ræður þar sem þeir litu um öxl og kvöddu skólann með hlýju, húmor og þakklæti. Í ræðunum var dregin upp mynd af árum sem einkenndust ekki aðeins af námi og verkefnum, heldur einnig vináttu, samstöðu og óteljandi minningum. Nemendur lýstu samhug í gegnum krefjandi áfanga og líflegt félagslíf sem gerði skólann að öðru heimili. Þakklæti var ríkjandi – til samnemenda, kennara og starfsfólks. Lesa meira...

Matsdagar 21.-22. maí

Hér má sjá dagskrá matsdaga 21.-22. maí. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á því að vera í samskiptum við kennara og mæta í sín próf og verkefni á réttum stað og stund.

Brautskráning vorannar

Brautskráning vorannar fer fram í Háskólabíó laugardaginn 31. maí kl. 10:45-12:15. Hér má lesa helstu upplýsingar um útskriftina fyrir nemendur og aðstandendur þeirra. LESA MEIRA...

Gott silfur er gulli betra

Lið MS kom, sá en sigraði því miður ekki í úrslitum MORFÍs sem fóru fram á Hótel Hilton á miðvikudagskvöld. Ræðufólkið okkar stóð sig með afburðum vel, bæði söng og kvað vísur upp í pontunni þar sem þau tókust á við það erfiða verkefni að mæla með ritskoðun. Versló tók gullið að þessu sinni en gott silfur er gulli betra eins og spakmælið segir, og MS fór heim með silfrið. Vigdís Elísabet úr ræðuliði MS fékk hvorki meira né minna en þrjá bikara fyrir að hafa verið ræðumaður kvöldsins í viðureignum vetrarins. Ræðufólk kvöldsins í liði MS voru Ásgeir Máni, María Sól og Vigdís Elísabet og liðsstjóri var Agla Rut.