Stundatöflur haustannar 2025 eru nú tilbúnar í INNU. Skólastarfið hefst mánudaginn 25. ágúst með skólasetningu kl. 8:30 í íþróttahúsinu og kennsla strax í kjölfarið samkvæmt stundaskrá.
Opnað hefur verið fyrir beiðnir um töflubreytingar á stúdentsbrautum í Innu og verður hægt að óska eftir töflubreytingum til kl. 15:00 mánudaginn 25. ágúst. Athugið að taka mið af undanförum en nemendur þurfa að ljúka undanfara til að komast í næsta áfanga í mörgum tilfellum. Sjá skipulag áfanga á heimasíðunni.
Athugið: Nær allir nemendur á öðru ári eru með fjóra áfanga í töflu + íþróttir og telst það full tafla.
Leiðbeiningar um hvernig töflubreytingabeiðnir eru framkvæmdar má finna hér.
Hópar eru mjög þétt setnir og því lítið svigrúm til töflubreytinga. Hér fyrir neðan er tafla sem sýnir hver staðan er í hverjum hópi fyrir sig en miðað er við að hópastærð í bóklegum áföngum fari ekki yfir 28 og í listgreinum ekki yfir 17. Rauðlitaðir hópar eru fullir. Í töflunni er raðað eftir stokkum og geta nemendur sem þurfa að óska eftir töflubreytingum því nýtt sér stokkatöfluna til leiðsagnar.
