30.05.2026
Það var mikill gleðidagur í MS í dag þegar 159 nemendur brautskráðust við hátíðlega athöfn í Háskólabíó. Alls luku 47 námi af líffræði- og efnafræðilínu, 17 af eðlisfræði- og stærðfræðilínu, 62 af hagfræði- og stærðfræðilínu og 27 af félagsfræði- og sögulínu. Sex nemendur útskrifuðust af starfsbraut og er þetta fyrsti hópurinn sem brautskráist af starfsbraut í sögu skólans.
29.05.2026
Brautskráning vorannar fer fram í Háskólabíó laugardaginn 30. maí kl. 11:00-12:30.
Útskriftarefni þurfa að vera mætt í Háskólabíó kl. 10.
Hvert útskriftarefni getur boðið 5-7 gestum á athöfnina. Salurinn opnar 10:45 og athöfnin sjálf hefst 11:00.
27.05.2026
Námsmatssýning vorannar fer fram fimmtudaginn 28. maí. Á námsmatssýningu gefst nemendum tækifæri til þess að sjá námsmatið og gera athugasemdir. Fyrirkomulag námsmatssýningarinnar verður með tvenns konar móti: annars vegar í skólanum kl. 11-12 og hins vegar í gegnum TEAMS kl. 10-12. Nemendur skulu því kynna sér upplýsingarnar hér mjög vel.
22.05.2026
Það var bæði hátíðleg og gleðileg stund í Menntaskólanum við Sund í gær þegar útskriftarnemar kvöddu skólann á fardegi, síðasta kennsludegi vorannar. Nemendur mættu prúðbúnir og á kveðjuathöfn á sal fluttu fulltrúar þeirra ræður þar sem litið var um öxl og skólafélögum þakkað fyrir skemmtileg ár í MS.
21.05.2026
Síðasti kennsludagur vorannar er fimmtudagurinn 21. maí. 22. og 26. maí eru matsdagar. Dagskrá matsdaga á sjá hér fyrir neðan. Nemendur bera ábyrgð á því að vera í samskiptum við kennara og mæta í sín próf / verkefni á réttum stað og stund.
15.05.2026
Menntaskólinn við Sund hefur hlotið viðurkenningu sem UNESCO-skóli og er nú hluti af alþjóðlegu neti skóla sem vinna að fræðslu um starfsemi Sameinuðu þjóðanna, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, mannréttindi, frið og alþjóðasamvinnu.
UNESO skólar vinna markvisst með þessi þemu, taka þátt í verkefnum á borð við Heimsins stærstu kennslustundina, halda upp á alþjóðlega daga SÞ og skipuleggja viðburði tengda málefnum á borð við jafnrétti og sjálfbærni. Einnig skila UNESCO skólar árlegri skýrslu um starfið.
12.05.2026
MS er nú orðinn PASCH-skóli og fékk viðurkenningu sem slíkur miðvikudaginn 6. maí. Að PASCH standa meðal annarra Goethe Institut, Deutsche Auslandsgesellschaft og þýska sendiráðið á Íslandi. Að vera hluti af PASCH skólasamstarfinu veitir nemendum fjölbreytt tækifæri til náms og alþjóðlegra samskipta. Þar má nefna þátttöku í spennandi verkefnum, aðgang að vönduðu námsefni og möguleika á dvöl eða námi í Þýskalandi. Samstarfið skapar mikilvægan grundvöll fyrir öfluga tungumálakennslu og opnar þýskunemendum greiðari leiðir að alþjóðlegu námi og tengslaneti.