Fréttir

Alþjóðlegi kennaradagurinn

Í dag er alþjóðadagur kennara og við fögnum okkar frábæru kennurum í dag sem alla daga. Kennarar gegna lykilhlutverki í skólasamfélaginu og leggja á hverjum degi sitt af mörkum til náms, þroska og velferðar nemenda okkar. Við óskum kennurum MS innilega til hamingju með daginn og þökkum þeim fyrir metnað, elju og gott og faglegt starf.