Áfanginn er undanfari ÍSLE2LR05 og lögð er áhersla á að undirbúa nemendur undir frekara nám í íslensku á framhaldsskólastigi. Í áfanganum þjálfast nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum og samvinnu. Unnið er með fjölbreytta texta til að efla orðaforða, lesskilning og læsi. Nemendur styrkja færni sína í stafsetningu og ritun og æfa sig í notkun hjálpargagna á borð við orðabækur, handbækur og leiðréttingaforrit. Nemendur lesa og vinna með styttri og lengri bókmenntatexta og þjálfast í notkun bókmenntahugtaka.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugtökum í ritgerðarsmíð
- orðaforða umfram það sem gerist í talmáli
- fjölbreyttum tegundum bókmennta og nytjatexta
- grunnhugtökum sem nýtast við umfjöllun um bókmenntir
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skrifa ýmsar tegundir texta í samfelldu máli þar sem framsetningin er skýr og skipulögð
- nota leiðréttingaforrit og önnur hjálpargögn til að lagfæra eigin texta
- draga saman aðalatriði í töluðu og rituðu máli
- leita upplýsinga úr heimildum og nýta þær á viðurkenndan hátt sér til gagns
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- semja stutta texta af ýmsu tagi með mismunandi málsniði
- beita einföldum blæbrigðum í málnotkun til að forðast einhæfni og endurtekningar
- halda uppi samræðum og rökstyðja eigin fullyrðingar, ákvarðanir eða skoðanir á málefnalegan hátt
- túlka og meta atburðarrás og persónur í bókmenntum eða annars konar frásögnum