Fréttir

Innritun lokið

Nú er innritun nýnema í Menntaskólann við Sund lokið og hafa verið innritaðir 227 nemendur á 1. ár, 160 nemendur á námslínur félagsfræðabrautar, 56 nemendur á námslínur náttúrufræðibrautar og 11 nemendur á starfsbraut. Í skólanum verða 737 nemendur í haust og er skólinn fullskipaður.

Lokun skrifstofu í sumar og upphaf næsta skólaárs

Skrifstofa MS verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með 24. júní til og með 4. ágúst. Skrifstofan opnar aftur kl. 10:00 miðvikudaginn 5. ágúst 2026.