Gervigreind og samfélag

Áfanginn fjallar um gervigreind, nánar tiltekið spunagreind, hvernig hún virkar og áhrif hennar á samfélagið í heild, með sérstaka áherslu á bæði nám og atvinnulíf. Nemendur læra að nota gervigreind með ábyrgum hætti, beita gagnrýnni hugsun við upplýsingaleit og nýta gervigreindarverkfæri á fjölbreyttan máta. Einnig verður fjallað um siðferðileg álitamál tengd gervigreind. Lögð er áhersla á hagnýta notkun, skapandi verkefni og umræðutíma.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Gervigreind, sögu hennar og hvernig hún virkar.
  • Siðferðilegum álitamálum tengdum gervigreind.
  • Hvernig gervigreind er notuð í mismunandi atvinnugreinum.
  • Áhrifum gervigreindar á samfélagið okkar.

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota mismunandi gervigreindarverkfæri á skilvirkan og ábyrgan hátt.
  • Greina og meta áreiðanleika upplýsinga sem gervigreind veitir.
  • Skrifa markviss fyrirmæli (e. prompts) til að nýta kosti gervigreindar eins vel og auðið er.
  • Nota gervigreind á skynsaman hátt til að bæta eigin afköst.

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Nota gervigreind með gagnrýnni hugsun í námi og starfi.
  • Skilja bæði kosti og áskoranir sem gervigreind hefur í för með sér.
  • Taka þátt í umræðum um framtíð gervigreindar og samfélagsleg áhrif hennar.
  • Geta metið siðferðileg álitamál og sett þau í samhengi við eigin ábyrgð.
  • Gera grein fyrir samspili þekkingar, siðferðis og ábyrgðar.
  • Geta beitt öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á eigin námi og unnið í samvinnu við aðra.


Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.

Undanfari: Enginn