Náms og starfsráðgjöf

 

Smelltu á hnappinn til að bóka tíma
Hægt er að bóka viðtal eða símaviðtal, mikilvægt er að velja ákveðinn ráðgjafa í bókunarferlinu.

Við vekjum athygl á því að ekki er boðið upp á einstaklingsviðtöl vegna innritunar en sjálfsagt mál er að panta símaviðtal eða senda tölvupóst.

Björk Erlendsdóttir (í leyfi)

bjorke@msund.is

 

Félagsráðgjafi

Forstöðumaður náms- og starfsráðgjafar

Ráðgjöf

 

Hildur Halla Gylfadóttir

hildurhg@msund.is

 

Náms- og starfsráðgjafi

Umsjón með Krossgötum

Ráðgjöf

Skrifstofa í JAR 22

Fjóla Dögg Blomsterberg

fjolab@msund.is

 

Náms- og starfsráðgjafi

Umsjón með Krossgötum

Ráðgjöf

Skrifstofa í JAR 22

Náms- og starfsráðgjöf


Markmið ráðgjafar í skólanum er að sinna nemendum á faglegan hátt í námi þeirra og einkamálum. Ráðgjöfin er veitt í trúnaði við nemendur. Ráðgjafinn gætir hags­muna ein­staklinga og hópa. Hann leitast við að vinna á fyrir­byggjandi hátt með það fyrir augum að nemendum takist að skapa sér viðunandi vinnuskilyrði heima fyrir og í skóla. Boðið er upp á einstaklingsviðtöl sem og hópráðgjöf ef aðstæður eru þannig að líklegt megi teljast að hún gagnist nemendum. Náms- og starfsráðgjafar annast skólakynningar, bæði til grunnskólanemenda sem og til útskriftarhópa Menntaskólans við Sund. Þeir veita einnig foreldrum, kennurum, skólastjórnendum og öðrum sem tengjast nemendum ráðgjöf sé þess óskað.

Sértæk þjónusta og stuðningur

Mikilvægt er að nemendur sem greindir er með námsörðugleika eða annað sem haft getur áhrif á námsframvindu séu meðvitaðir um hvaða þjónusta er í boði. Brýnt er að upplýsa náms- og starfsráðgjafa strax í upphafi náms eða um leið og greining liggur fyrir. Kennarar geta þá nálgast upplýsingar um sína nemendur og geta þá betur komið til móts við nemanda ef á þarf að halda.

Nemendur sem eiga rétt á upplestri á prófum geta fengið öll gagnalaus próf og kannanir rafrænt í gegnum INNU og nýta sé þar með talþulur í tölvum í upplestur. Nemendur sem óska eftir þessari þjónustu þurfa að sitja námskeið hjá náms- og starfsráðgjöfum og undirrita samning um heiðarleika í námi. Nemendur notast við sínar eigin tölvur og heyrnatól og er það forsenda þess að nemandi geti nýtt sér þjónustuna.

Fræðsla og námskeið

Náms -og starfsráðgjafar sjá um ýmis konar fræðslu og námskeið á hverri önn. Er það auglýst á skjákerfi skólans og með tölvupósti sem fer á nemendur og forráðamenn þeirra skv. Innu.

Hvert er annað hægt að leita?

Náms- og starfsráðgjafar og hjúkrunarfræðingar í skólum eru bundin trúnaði við sína skjólastæðinga en stundum vilja nemendur tala við einhvern annan í trúnaði og jafnvel nafnlaust um persónulegri málefni:

 












Sjúkt spjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni yngri en 20 ára af öllum kynjum til að ræða áhyggjur af samböndum sínum, samskiptum eða ofbeldi.

 

Í neyðartilvikum ætti alltaf að hringja í EINN EINN TVEIR. Líka hægt að hafa samband við neyðarvörð á netspjallinu á 112.is. Alltaf opið!

Hjálparsíminn 1717 og netspjall 1717.is Veita sálfélagslegan stuðning, hlustun, ráðgjöf og upplýsingar um úrræði á Íslandi.

 

Neyðarmóttakan er fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Hún er staðsett á Bráðamótttökunni á Landspítalanum í Fossvogi.

 

Heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.

 

Bergið- headspace- er stuðnings og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri.

 

Píeta samtökin-veitir fyrstu hjálp, aðgengilega þjónustu, stuðning og meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu og brú í úrræði fyrir aðra.

 

Stígamót er ráðgjafar- og fræðslumiðstöð sem vinnur gegn kynferðislofbeldi

 

Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og býður áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýisngar fyrir þolendur ofbeldis 18 ára og eldri.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Síðast uppfært: 31.08.2023