01.09.2026
Tveir nýútskrifaðir nemendur Menntaskólans við Sund fengu í ár styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstarfi, listum eða íþróttum.
Styrkþegar úr MS eru Enok Hjörvarsson og Sólný Helga Sigurðardóttir. Enok hefur hafið nám í lífeindafræði og Sólný í almennri bókmenntafræði með ritlist sem aukagrein. Við sendum þeim innilegar hamingjuóskir og óskum þeim góðs gengis í náminu.
28.08.2026
Rúmlega 200 nýnemar nutu veðurblíðu í Vatnaskógi í gær í árlegri nýnemaferð. Dagskráin i Vatnaskógi var sniðin að því að nýnemar ættu mikil og góð samskipti og kynntust betur. Byrjað var á hópleik í tveimur hollum og kaffitíma þar sem boðið var upp á nýbakaðar kökur ala Vatnaskógur. LESA MEIRA...
28.08.2026
Menntaskólinn við Sund flaggar í hálfa stöng í dag vegna andláts Haralds V Noregskonungs. Það eru tilmæli frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu
20.08.2026
Skólasetning verður stundvíslega klukkan 8:30 föstudaginn 21. ágúst. Skólasetningin verður í Holti, matsal skólans (athugið breytta staðsetningu).
Að lokinni skólasetningu hefst kennsla samkvæmt stundatöflu.
19.08.2026
Stundatöflur haustannar eru nú tilbúnar í INNU. Töflubreytingar í Innu eru opnar til kl. 15:00 föstudaginn 21. ágúst. Töflubreytingar á skrifstofu skólans eru opnar frá klukkan 11:00 til 16:00 fimmtudaginn 20. ágúst. Ekki er hægt að koma á skrifstofu skólans föstudaginn 21. ágúst og óska eftir töflubreytingu því kennsla fer fram samkvæmt stundatöflu þann dag.
14.08.2026
Haustönn 2026 hefst 20. ágúst með móttöku nýnema, kynningu á skólastarfinu og tölvunámskeiði.
11.08.2026
Innritun nýnema á haustönn 2026 er nú lokið og skólinn fullsetinn. Þeir sem hafa áhuga á skólavist í MS á næstu önnum eru hvattir til að fylgjast með á heimasíðu skólans við annarskil.