Fréttir

Brautskráning vetrarannar 6. mars 2026

Brautskráning vetrarannar fór fram í Menntaskólanum við Sund föstudaginn 6. mars. Að þessu sinni voru sex nemendur brautskráðir frá MS. Athöfnin var stutt og óformleg en engu minna hátíðleg enda alltaf stór stund þegar nemendur ljúka stúdentsprófi. Ayham Abdlkalek Alzoer, nýstúdent af ES-línu, hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur. Innilegar hamingjuóskir, kæru nýstúdentar!

MS sækir um að verða UNESCO-skóli

Í vetur er MS að sækja um að verða UNESCO-skóli. Í því felst að samkomulag og samvinna er á milli skólans og UNESCO þar sem skólinn innleiðir verkefni tengdum þremur meginþemum UNESCO-skóla sem eru: Alþjóðleg borgaravitund og menning friðar og ofbeldisleysis. Sjálfbær þróun og sjálfbær lífsstíll. Þvermenningarlegt nám, virðing og skilningur á menningarlegum fjölbreytileika og arfleifð.