Fréttir

Engin kennsla föstudaginn 27. febrúar vegna starfsþróunardags

Föstudaginn 27. febrúar verður haldinn sameiginlegur starfsþróunardagur framhaldsskólanna. Engin kennsla verður þann dag.

Stundatöflur vorannar tilbúnar í Innu og opið fyrir töflubreytingar

Stundatöflur vorannar eru nú tilbúnar í INNU. Einnig hefur verið opnað fyrir óskir um töflubreytingar í Innu og verður hægt að óska eftir töflubreytingum til kl. 15:00 mánudaginn 23. febrúar. Athugið að taka mið af undanförum en nemendur þurfa að ljúka undanfara til að komast í næsta áfanga í mörgum tilfellum (sjá skipulag áfanga á heimasíðunni). Athugið að fyrstu töflubreytingaóskirnar verða afgreiddar um miðjan dag á sunnudag og því gildir hér fyrstur kemur fyrstur fær. Áfram verður þó hægt að gera töflubreytingaóskir í Innu til kl. 15 á mánudag. Nemendur sem þurfa aðstoð við töflubreytingar þurfa að koma í MS mánudaginn 23. febrúar og þar gildir líka að fyrstur kemur fyrstur fær.

Námsmatssýning vetrarannar 19. febrúar 2026

Nú er vetrarönn að ljúka og lokaeinkunnir áfanga hafa verið birtar í Innu. Námsmatssýning vetrarannar fer fram fimmtudaginn 19. febrúar. Á námsmatssýningu gefst nemendum tækifæri til þess að skoða námsmatið og gera athugasemdir. Fyrirkomulag námsmatssýningarinnar verður með tvenns konar móti: annars vegar í skólanum og hins vegar í gegnum TEAMS. Nemendur skulu því kynna sér upplýsingarnar hér mjög vel.

Matsdagar við lok vetrarannar

Í dag er síðasti kennsludagur vetrarannar. Í næstu viku eru matsdagar og dagskrá má sjá á myndinni hér fyrir neðan. Lokaeinkunnir vetrarannar birtast svo í Innu miðvikudaginn 18. febrúar og námsmatssýning fer fram daginn eftir. Kennsla á vorönn hefst þriðjudaginn 24. febrúar og nemendur og aðstandendur fá tölvupóst þegar stundatöflur vorannar eru tilbúnar.