28.04.2026
Langar þig í MS? Innritun nemenda úr 10. bekk stendur yfir frá 25. apríl til 10. júní. Sótt er um í gegnum innritun.is
30.04.2026
Á dögunum fengum við góða gesti í heimsókn frá Herlufsholm Skole og Gods. Skólinn er elsti og virtasti heimavistarskóli Danmerkur, stofnaður árið 1565, og samanstóð hópurinn af nemendum og kennurum sem mættu í dönskutíma hjá okkur í MS.
28.04.2026
Fimmtudaginn 30. apríl er matsdagur og þá er ekki kennt samkvæmt stundatöflu en nemendur gætu þurft að mæta í verkefni eða próf. Dagskrá matsdagsins má sjá hér að neðan og nemendur bera ábyrgð á því að vera í samskiptum við kennara og mæta á réttum stað og stund. Föstudaginn 1. maí er skólinn svo lokaður vegna verkalýðsdagsins.
24.04.2026
Umhverfisvika fór fram í MS dagana 20.-22. apríl. Vikan var skipulögð af umhverfisnefnd skólans en í henni sitja nemendur í Grænfánaáfanga sem Kristbjörg Árnadóttir umhverfisfræðikennari hefur umsjón með. Í áfanganum kynnast nemendur umhverfisstjórnunarkerfi sem verkefnið Skólar á grænni græn byggir á og beita áhrifum sínum í átt að aukinni sjálfbærni innan skólans og nærsamfélagsins. Áfanginn er kenndur yfir allt skólaárið og þar fara nemendur í gegnum þau skref sem til þarf til að fá Grænfánann. Vinnan nær hámarki sínu í umhverfisviku að vori þar sem nemendur standa fyrir viðburðum tengdum umhverfismálum og með Grænfánaafhendingu.
09.04.2026
Laugardaginn 11. apríl verður Söngkeppni framhaldsskólanna 2026 haldin með pompi og prakt í Háskólabíó. Keppnin verður líka sýnd í beinni á RÚV og hefst útsendingin kl. 20:45. Fulltrúi MS í keppninni er Maja Margrét Tosik-Warszawiak sem flytur lagið I Have Nothing. Áhorfendur geta kosið keppendur og við hvetjum öll til að kjósa okkar konu í síma 9009111.
Við óskum Maju góðs gengis og áfram MS!