26.02.2026
Föstudaginn 27. febrúar verður haldinn sameiginlegur starfsþróunardagur framhaldsskólanna. Engin kennsla verður þann dag.
20.02.2026
Stundatöflur vorannar eru nú tilbúnar í INNU. Einnig hefur verið opnað fyrir óskir um töflubreytingar í Innu og verður hægt að óska eftir töflubreytingum til kl. 15:00 mánudaginn 23. febrúar. Athugið að taka mið af undanförum en nemendur þurfa að ljúka undanfara til að komast í næsta áfanga í mörgum tilfellum (sjá skipulag áfanga á heimasíðunni).
Athugið að fyrstu töflubreytingaóskirnar verða afgreiddar um miðjan dag á sunnudag og því gildir hér fyrstur kemur fyrstur fær. Áfram verður þó hægt að gera töflubreytingaóskir í Innu til kl. 15 á mánudag. Nemendur sem þurfa aðstoð við töflubreytingar þurfa að koma í MS mánudaginn 23. febrúar og þar gildir líka að fyrstur kemur fyrstur fær.
18.02.2026
Nú er vetrarönn að ljúka og lokaeinkunnir áfanga hafa verið birtar í Innu. Námsmatssýning vetrarannar fer fram fimmtudaginn 19. febrúar. Á námsmatssýningu gefst nemendum tækifæri til þess að skoða námsmatið og gera athugasemdir. Fyrirkomulag námsmatssýningarinnar verður með tvenns konar móti: annars vegar í skólanum og hins vegar í gegnum TEAMS. Nemendur skulu því kynna sér upplýsingarnar hér mjög vel.
13.02.2026
Í dag er síðasti kennsludagur vetrarannar. Í næstu viku eru matsdagar og dagskrá má sjá á myndinni hér fyrir neðan.
Lokaeinkunnir vetrarannar birtast svo í Innu miðvikudaginn 18. febrúar og námsmatssýning fer fram daginn eftir.
Kennsla á vorönn hefst þriðjudaginn 24. febrúar og nemendur og aðstandendur fá tölvupóst þegar stundatöflur vorannar eru tilbúnar.
26.01.2026
Matsdagar verða þriðjudaginn 27. janúar og miðvikudaginn 28. janúar. Dagskrá matsdaga má sjá á meðfylgjandi mynd og nemendur bera sjálfir ábyrgð á því að mæta í sín verkefni / próf á réttum stað og stund.
23.01.2026
Söngvakeppnin Baulan var haldin í Gamla bíó fimmtudaginn 22. janúar. Í keppnina voru skráð 7 atriði, hvert öðru glæsilegra. Dómnefnd skipuðu Jóna Margrét, Guðjón Smári og Gugga í gúmmíbát og foreldraráð skólans gaf vinninga.
Sigurvegari að þessu sinni var Maja Margrét með lagið Die on this hill með Sienna Spiro. Maja verður því fulltrúi skólans í Söngvakeppni framhaldsskólanna 2026. Í öðru sæti var Ína Andradóttir og í þriðja sæti Arnór Orri.
Til hamingju kæru Maja, Ína og Arnór Orri!
19.01.2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um skólavist í Menntaskólanum við Sund á vorönn 2026. Aðeins verður tekið inn í örfá laus pláss. Skólinn áskilur sér rétt til að velja úr umsóknum miðað við rými á námslínum og hvernig námsferlar umsækjenda passa inn í laus pláss í skólanum. Opið er fyrir umsóknir til og með 3. febrúar 2025. Sótt er um hér í gegnum heimasíðu skólans.
16.01.2026
Þann 14. janúar síðastliðinn var haldinn skólafundur í MS þar sem bæði nemendur, starfsfólk, fulltrúar foreldra og skólanefnd tóku þátt í vinnu við að endurskoða og móta gildi skólans. Fundurinn var liður í því að efla skólabrag, stuðla að festu í skólastarfi og tryggja að gildi skólans endurspegli allt skólasamfélagið. LESA MEIRA...
06.01.2026
Lið MS sigraði VA í fyrstu umferð Gettu betur í gær. Liðið er því komið áfram í keppninni. Til hamingju með frábæran árangur, Hinrik Hugi, Oliwia Eva og Hekla Kristín!