Streymisþjónusta – MSund

Skólinn rekur innri streymisþjónustu þar sem starfsfólk hefur aðgang að
kvikmynda- og sjónvarpssafni skólans. Þjónustan keyrir á Jellyfin og er
aðeins aðgengileg á starfsmannaneti skólans (MSund-Starfsfolk).


Hvað er í boði?

- Íslenskar kvikmyndir og heimildamyndir
- Erlendar kvikmyndir og þættir
- Tungumálaefni til kennslu
- Og fleira úr DVD safni skólans


Hvernig kemst ég inn?

1. Tengstu MSund-Starfsfolk netinu.
2. Opnaðu vafrann og farðu á streymi.msund.is.
3. Skráðu þig inn með notandanafni og lykilorði — hafðu samband við
skrifstofu eða Tölvudeild til að fá aðgang.


Gott að vita

- Aðeins starfsfólk hefur aðgang að þjónustunni.
- Þjónustan virkar eingöngu á skólanetinu — ekki hægt að nota heima.
- Notið vafrann (Chrome, Firefox eða Edge) — engin sérstök forrit þarf að setja upp.
- Ef þú átt í vandræðum með afspilun, prófaðu annan vafra eða hafðu samband
við Sundvita eða Tölvudeild.


Samband

- Skrifstofa: Til að fá aðgangsupplýsingar
- Tölvudeild: tolvuumsjon@msund.is / 580-7322