Fréttir

Gettu betur og Baulan

MS mætir MK í fyrstu umferð Gettu betur fimmtudaginn 9. janúar kl. 18. Keppnin er í beinni á RÚV.is en MS-ingar eru hvattir til að fjölmenna í Útvarpshúsið Efstaleiti og styðja sitt lið. Seinna um kvöldið fer svo fram Baulan, söngvakeppni SMS. Baulan er haldin í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll og hefst kl. 20.

Brautskráning í desember

Þann 20. desember síðstliðinn brautskráðust þrír nemendur frá MS, einn af líffræði- og efnafræði línu og tveir af hagfræði- og stærðfræðilínu. Við óskum þeim innilega til hamingju með áfangann.