24.09.2026
Stór hluti kennara í MS er fastur í Helsinki vegna verkfalls flugvirkja. Skólahald fellur ekki niður en ljóst er að einhver röskun verður á skólahaldi.
18.09.2026
Á mánudaginn í næstu viku, þann 21. september, er starfsþróunardagur kennara. Allt skólahald fellur niður þann dag og er skólinn lokaður. Þriðjudag og miðvikudag, 22. og 23. september, eru fyrstu matsdagar haustannar. Dagskrá má sjá á meðfylgjandi mynd.
17.09.2026
Kennsla fellur niður eftir hádegi í dag, vegna útfarar Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur, nemanda við skólann. Útför Arndísar Höllu fer fram í dag, 17. september, klukkan 13:00 frá Grafarvogskirkju.
Hér á eftir fara minningarorð frá rektor skólans:
11.09.2026
Í sumar tóku 30 nemendur frá Menntaskólanum við Sund þátt í námskeiðinu The Uncomfortable Expedition, sem haldið er af Oxford- og Cambridge-háskólum. Nemendurnir fóru í þremur hópum ásamt tveimur kennurum og dvöldu í níu daga í háskólaborginni Cambridge þar sem markmiðið var að stíga út fyrir þægindarammann, takast á við nýjar áskoranir og efla bæði sjálfstraust og leiðtogahæfni. LESA MEIRA...
09.09.2026
Í dag er flaggað í hálfa stöng við skólann vegna útfarar Haralds V Noregskonungs.
01.09.2026
Tveir nýútskrifaðir nemendur Menntaskólans við Sund fengu í ár styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstarfi, listum eða íþróttum.
Styrkþegar úr MS eru Enok Hjörvarsson og Sólný Helga Sigurðardóttir. Enok hefur hafið nám í lífeindafræði og Sólný í almennri bókmenntafræði með ritlist sem aukagrein. Við sendum þeim innilegar hamingjuóskir og óskum þeim góðs gengis í náminu.