Fyrirbyggjandi aðgerðir vegna smithættu

Menntaskólinn við Sund leggur áherslu á að nemendur og starfsfólk skólans gæti ítrustu varkárni vegna smithættu. Vakin er athygli á því að landlæknisembættið uppfærir reglulega viðbragðasáætlun sína eftir því sem dreifing smitsjúkdóma verður meiri. 

Aðgerðir Menntaskólans við Sund til að draga úr smithættu

1. Sótthreinsun/handhreinsun: Búið er að setja upp á nokkrum stöðum í skólanum sprittbrúsa með sótthreinsivökva og eru allir hvattir til þess að nota þá reglulega. Þá hefur skólinn þegar sett upp gólfstanda fyrir sprittbrúsa sem settir hafa verið við kaffistofu, framan við snyrtingar, við matsal og innganga að skólanum. Skólinn hvetur alla til þess að þvo sér vel um hendur með sápu og spritti og gæta ítrasta hreinlætis.

2. Sérstök sótthreinsun flata sem margir snerta: Sett hefur verið upp aðgerðaáætun um hreinsun flata sem margir snerta á hverjum degi. Það sem hér ræðir er: Sótthreinsun borða í matsal skólans og á kaffistofu starfsfólks, hreinsun hurðahúna að stofum og öðrum rýmum, Hreinsun æfingatækja í tækjasal skólans, hreinsun lyklaborða við tölvur skólans.

  • Borð í matsalnum verða sótthreinsuð daglega klukkan 11 að morgni áður en hádegisörtröðin byrjar. Nemendur eru beðnir um að auðvelda sótthreinsunina með því að ganga vel um og losa borð sem þarf að þrífa.
  • Sótthreinsun á snyrtingum verður bætt við dagleg almenn þrif á snyrtingunum
  • Sótthreinsun borða á kaffistofu verður framkvæmd um klukkan 11 hvern morgun
  • Sótthreinsun lyklaborða sem margir snerta verður framkvæmd daglega
  • Hurðahúnar verða sótthreinsaðir daglega
  • Bætt hefur verið við sótthreinsun á borðum í kennslustofum ofan á almenn þrif þeirra

3. Fræðsla fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skólans: Sett hefur verið upp áætlun um að fræða og upplýsa þá sem starfa í MS, nemendur og forráðamenn þeirra um fyrirbyggjandi aðgerðir sem landlæknisembættið leggur til að gripið verði til og mun skólinn í þessu samhengi setja upp plaköt í skólanum, nýta tölvusamskipti, heimasíðu skólans og aðra vefmiðla til að vekja athygli á fyrirbyggjandi aðgerðum og hvernig ber að haga sér vakni upp grunsemdir um smit.

4. Aðgerðir MS verði lýst yfir heimsfaraldri kórónaveirunnar: Í Öryggisnefnd skólans og á fundum stjórnenda hans hefur þegar verið rætt um hvernig skólinn geti undirbúið sig versni ástandið og lýst verði yfir heimsfaraldri kórónaveirunnar. Ljóst er að skólinn mun í öllu fylgja tilmælum landlæknisembættisins en skoðað verður sérstaklega hvernig skólinn geti haldið úti skólastarfi ef til þess kæmi að hefðbundið skólastarf raskist.

Nemendur MS, starfsfólk og allir aðrir sem erindi eiga í skólann eru hvattir til þess að kynna sér vel leiðbeiningar og tilmæli um fyrirbyggjandi aðgerðir á vef embættis landlæknis. Sjá einnig nánar hér á heimasíðu skólans [Viðbragðsáætlun MS]