Minningarsjóður Björns Bjarnasonar

Sjóðurinn er stofnaður til minningar um Björn Bjarnason rektor Menntaskólans við Sund frá 1970 til 1987. Sjóðurinn var stofnaður í tilefni af 30 ára útskriftarafmæli fyrsta útskriftarárgangs MT í maí 2003. Fyrir lá skipulagsskrá sjóðsins og er sjóðurinn í vörslu Menntaskólans við Sund.

Sjóðurinn hefur tvíþætt hlutverk samkvæmt 2. gr.skipulagsskrár hans:

A. Að verðlauna góðan árangur við brautskráningu frá Menntaskólanum við Sund.

B. Að styrkja til framhaldsnáms nemanda sem brautskráðst hefur frá Menntaskólanum við Sund. Styrkþegar skulu hafa sýnt góðan námsárangurog ástundun á menntaskólaárum sínum eða annað það sem verðskuldar að þeim sé veittur styrkur. Styrkupphæð fer eftir ákvörðun sjóðsstjórnar hverju sinni.

Skilyrði fyrir styrkveitingum úr sjóðnum eru:

A. Fyrir góðan árangur á stúdentsprófi eða aðra eftirtektarverða frammistöðu í skólanum, skal veita viðurkenningu eftir því sem styrktarsjóðunum þykir tilefni til hverju sinni.

B. Fyrir veitingu námsstyrks:

a) Umsækjandi skal hafa lokið a.m.k. eins árs námi á háskólastigi.

b) Með umsókn skal fylgja vottorð um lokið nám og skýrsla umframvindu náms sem stundað er.

Fyrsta úthlutun skv. A hluta 2. gr. skipulagsskrárinnar fór fram árið 2004 en árið áður var veitt viðurkenning til nemanda í nafni sjóðsins að tillögu skólans. Ákvæði B hluta koma ekki til framkvæmda fyrr en sjóðsstjórn og skólanefnd telja sjóðinn hafa afl til og því koma önnur ákvæði sem lúta að námsstyrkjum jafnframt ekki til framkvæmda fyrr en þá. Ákvæði B er ekki ennþá komið til framkvæmda.

Öðrum afmælisárgöngum MT og MS er velkomið að leggja sjóðnum lið til að sjóðurinn haldi áfram að styrkjast. Vinsamlegast hafið sambandi við rektor til að fá nánari upplýsingar. Eftirfarandi eru upplýsingar um vörslu sjóðinn fyrir þá sem vilja leggja honum lið:

Kennitala: 700670-0589

Banki – HB – reikn: 0313-13-251251.

Minningarsjóðurinn hefur árlega veitt bókaverðlaun til stúdenta sem hafa staðið sig mjög vel á stúdentsprófi eða skarað fram úr á öðrum sviðum í skólasamfélaginu.

Á 50 ára útskriftarafmæli fyrsta útskriftarárgangs MT veitti hópurinn veitti 500.000 króna styrk í sjóðinn. Í tilefni 50 ára útskriftarafmælisins veitti hópurinn einnig 100.000 kr. peningastyrki til tveggja nemenda, annars vegar til dúx skólans, Thanawin Yodsurang, fyrir framúrskarandi námsárangur og hins vegar til Þorvaldar Nóa Tobiassonar Klose, fráfarandi ármanns skólanfélags MS, fyrir leiðtogahæfni og prúðmennsku.

Eftirfarandi verðlaun hafa verið veitt úr sjóðnum:

Nýstúdent Útskriftarár
Þorvaldur Nói Tobiasson Klose 2023
Thanawin Yodsurang 2023
Dagmar Kaldal Ómarsdóttir 2022
Kristín Lovísa Andradóttir 2021
Birkir Emil Thor Björnsson  2020
Harpa Líf Hallgrímsdóttir 2019
Ásta Jóhanna Harðardóttir 2018
Gígja Björg Guðjónsdóttir 2017
Ása Alexía Unnarsdóttir og Herborg Lúðvíksdóttir 2016
Sturla Sær Erlendsson 2015
Elísa Líf Ingvarsdóttir 2014
Úndína Ýr Þorgrímsdóttir 2013
Hilmar Freyr Kristinsson 2012
Ísak Pálmason 2011
Anna María Kristinsdóttir 2010
Haraldur Gísli Sigfússon 2009
Hildur Sturludóttir 2008
Tryggvi Karl Valdimarsson 2007
Arngrímur Vídalín Stefánsson 2006
Silja Rut Thorlacíus 2005
Pétur Ólafur Aðalgeirsson 2004
Þóra Bjarnadóttir 2003