Nemendur skólans fá úthlutað 250 bls. prentkvóta við upphaf skólaárs. Ef þeir klára prentkvóta sinn geta þeir keypt "áfyllingu" á skrifstofu skólans gegn vægu gjaldi. Prentarar fyrir nemendur er í Aðalsteini annarri hæð (AÐA20) og á bókasafni. Nemendur geta bæði prentað, ljósritað og skannað í þeim tækjum.
Prentþjónusta er á skrifstofu skólans (sjá gjaldskrá) en þar er hægt að fá prentað í lit og á A3 blöð.
ATH! Einungis er hægt að prenta úr borðtölvum í skólanum.
Að prenta í skólanum
- Skrá sig inn í borðtölvu í skólanum með notendanafni og lykilorði
- Opna skjal sem skal prenta
- Gefa skipun um prentun, t.d. í File - print
- Skjölum á netinu þarf fyrst að hala niður í tölvuna (Save as)
- Velja prentara sem heitir Nemendur on WOWMYQ
- Ef þessi prentari kemur ekki upp smellið þá á Add printer og veljið þennan prentara.
- Stilla það sem stilla þarf, t.d. eintakafjölda og hvort prenta eigi báðu megin eða öðru megin.
- Smella á Print
- Fara að nemendaprentara.
- Slá inn PIN númerið sem sent var í skólanetfangið í Outlook í office pakkanum. Sendandi MyQ.
- Velja hnappinn efst til vinstri á skjá prentarans.
- Hægt er að nota prentarann einnig sem ljósritunarvél og skanna.
Ahugið!
Starfsmenn og nemendur skólans eru hvattir til þess að virða lög um höfundarétt og reglur um fjölföldun á efni.
Síðast uppfært: 02.12.2022