Námsmatssýning haustannar fimmtudaginn 12. nóvember kl. 11-12

Nú hafa lokaeinkunnir haustannar verið birtar í Innu. Námsmatssýning haustannar fer fram fimmtudaginn 12. nóvember kl. 11-12. Á námsmatssýningu gefst nemendum tækifæri til þess að skoða námsmatið og gera athugasemdir. Á meðfylgjandi mynd sést í hvaða stofu kennarar verða á námsmatssýningunni. 

Fyrirkomulag námsmatssýningarinnar verður með tvenns konar móti: annars vegar í skólanum og hins vegar í gegnum Teams. Nemendur skulu því kynna sér upplýsingarnar hér mjög vel.

Námsmatssýning á Teams verður kl. 10-12 sama dag. Bókið tíma með því að smella hér. 

Eftirfarandi kennarar eru með námsmatssýningu á Teams: 

Andri - félagsgreinar

Brynhildur - saga

Kristjana - þýska

Sigríður Alma - danska og franska

Sólveig - efnafræði

Trine - danska