Talað saman í MS

Nemendur úr MS og FÁ tóku á dögunum þátt í verkefninu Tala saman, þar sem framhaldsskólanemar buðu til opins og lýðræðislegs samtals um málefni líðandi stundar. Verkefnið varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og fór fram í mörgum framhaldsskólum um liðna helgi. 

Verkefnið er samstarfsverkefni á landsvísu en í MS var það unnið í samstarfi MS og FÁ undir stjórn jafnréttis- og félagsmálafulltrúa skólanna. Skátahreyfingin sá um þjálfun þeirra sem leiddu samtölin. Alls fengu 24 nemendur þjálfun í að leiða samtal og fór hún fram fyrr um daginn. Í kjölfarið tóku um 60 manns þátt í samtölum við sjö borð þar sem nemendurnir stýrðu umræðum.

Nemendurnir stóðu sig frábærlega í hlutverki samtalsstjóra og hefðu gjarnan viljað fá enn fleiri gesti til liðs við sig. Verkefnið gaf þátttakendum tækifæri til að hittast, ræða saman og skiptast á ólíkum sjónarmiðum um málefni samtímans.

RÚV kom í heimsókn og sjá má viðtal við nemendur hér.