Hér má sjá svipmyndir úr ferðunum þremur.
Nemendur MS voru svo sannarlega á faraldsfæti á matsdögunum í október. Þrír nemendahópar héldu utan í námsferðir og færðu þannig námið út fyrir bæði skólastofuna og landsteinana. Námsferðir sem þessar eru mikilvægur hluti af fjölbreyttu skólastarfi MS. Nemendur fá tækifæri til að kynnast nýjum stöðum og menningu, nýta tungumálakunnáttu sína og takast á við nám og verkefni í nýju umhverfi.
Nemendur í Berlínar- og Parísarvali fengu tækifæri til að upplifa af eigin raun borgirnar sem þau hafa verið að læra um í haust. Í aðdraganda ferðanna unnu nemendur verkefni um sögu, menningu og mannlíf Berlínar og Parísar og þjálfuðu jafnframt þýsku og frönsku með áherslu á samskipti sem nýtast í daglegu lífi. Þegar út var komið heimsóttu nemendur þekkta staði og kennileiti borganna, kynntust borgarlífinu og fengu tækifæri til að nýta tungumálið í raunverulegum aðstæðum.
Að auki lá leiðin til Pisa á Ítalíu þar sem níu nemendur heimsóttu ítalska nemendur og skólann þeirra. Ferðin tengist samstarfi MS við skóla í Pisa en MS tók á móti nemendum þaðan síðastliðið vor.