Stundatöflur vetrarannar eru nú tilbúnar í INNU

Stundatöflur vetrarannar eru nú tilbúnar í INNU.

Töflubreytingar í Innu eru opnar til kl. 15:00 á mánudaginn 15. nóvember. Byrjað verður að vinna úr óskum um töflubreytingar á sunnudag. 

Töflubreytingar á skrifstofu skólans eru opnar kl. 10:00 til 14:00 mánudaginn 16. nóvember. 

Ekki er hægt að koma á skrifstofu skólans þriðjudaginn 17. nóvember og óska eftir töflubreytingu því kennsla fer fram samkvæmt stundatöflu þann dag.

Athugið að taka mið af undanförum en nemendur þurfa að ljúka undanfara til að komast í næsta áfanga í mörgum tilfellum (sjá skipulag áfanga á heimasíðunni).

🔗Leiðbeiningar um hvernig töflubreytingaóskir eru framkvæmdar má finna hér.

Hópar eru mjög þétt setnir og því lítið svigrúm til töflubreytinga. Á meðfylgjandi mynd er áföngum raðað eftir stokkum sem þeir eru kenndir í og geta nemendur sem þurfa að óska eftir töflubreytingum nýtt sér stokkatöfluna til leiðsagnar.