Fréttir

Opið fyrir umsóknir á vorönn 2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um skólavist í Menntaskólanum við Sund á vorönn 2026. Aðeins verður tekið inn í örfá laus pláss. Skólinn áskilur sér rétt til að velja úr umsóknum miðað við rými á námslínum og hvernig námsferlar umsækjenda passa inn í laus pláss í skólanum. Opið er fyrir umsóknir til og með 3. febrúar 2025. Sótt er um hér í gegnum heimasíðu skólans.

Skólafundur í MS – nemendur, starfsfólk og foreldrar móta saman framtíðargildi skólans

Þann 14. janúar síðastliðinn var haldinn skólafundur í MS þar sem bæði nemendur, starfsfólk, fulltrúar foreldra og skólanefnd tóku þátt í vinnu við að endurskoða og móta gildi skólans. Fundurinn var liður í því að efla skólabrag, stuðla að festu í skólastarfi og tryggja að gildi skólans endurspegli allt skólasamfélagið. LESA MEIRA...

MS áfram í Gettu betur

Lið MS sigraði VA í fyrstu umferð Gettu betur í gær. Liðið er því komið áfram í keppninni. Til hamingju með frábæran árangur, Hinrik Hugi, Oliwia Eva og Hekla Kristín!