Opið fyrir umsóknir á vorönn 2027

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um skólavist í Menntaskólanum við Sund á vorönn 2027. Aðeins verður tekið inn í örfá laus pláss. Skólinn áskilur sér rétt til að velja úr umsóknum miðað við rými á námslínum og hvernig námsferlar umsækjenda passa inn í laus pláss í skólanum. Opið er fyrir umsóknir 1. - 30. nóvember 2026 og sótt er um í gegnum Ísland.is. Upphafsdagur vorannar er þriðjudagur 23. febrúar 2027, sjá skóladagatal.

Eftirfarandi námslínur eru í boði fyrir nemendur fædda 2010:

  • Náttúrufræðibraut
    Líffræðilína
    Eðlisfræðilína
  • Félagsfræðabraut
    Félagsfræðilína
    Sálfræðilína
    Nýsköpunarlína
    Hagfræðilína
    Viðskiptalína

Eftirfarandi námslínur eru í boði fyrir nemendur fædda 2009 eða fyrr: 

  • Náttúrufræðibraut:
    Líffræði- og efnafræðilína
    Eðlisfræði- og stærðfræðilína
  • Félagsfræðabraut:
    Hagfræði- og stærðfræðilína
    Félagsfræði- og sögulína