PASCH-hátíð

Menntaskólinn við Sund hefur nú formlega tekið við sem PASCH-skóli á Íslandi af Borgarholtsskóla, sem hefur sinnt þátttöku í verkefninu undanfarin ár.

PASCH er alþjóðlegt net skóla sem leggur áherslu á þýskukennslu og tengsl við þýska tungu og menningu. Þátttakan opnar jafnframt ýmis tækifæri fyrir nemendur, meðal annars í tengslum við námsstyrki, alþjóðlegt samstarf og undirbúning fyrir nám í Þýskalandi.

Þessum tímamótum var fagnað við hátíðlega athöfn í MS í dag. Þar fluttu ávörp Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands á Íslandi, Barbara Honrath, forstöðumaður Goethe-Institut í Danmörku, og Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor MS.

Athöfnin var hátíðleg enda merk tímamót. Allir þýskunemendur skólans tóku þátt í athöfninni og hlýddu þar meðal annars á þýska tónlist. Svavar Knútur flutti tónlist bæði á þýsku og íslensku og kór starfsfólks flutti lagið Wir spinnen feine Fäden. Þá lék Daði Harðarson, nemandi við skólann, á gítar. Að athöfn lokinni var boðið upp á veitingar að þýskum sið.  

PASCH-netið var stofnað árið 2008 að frumkvæði Frank-Walter Steinmeier, núverandi forseta Þýskalands og þáverandi utanríkisráðherra. Í dag tengir netið saman yfir 2.000 skóla og meira en 600.000 nemendur í um 120 löndum. Þýska sendiráðið og Goethe-Institut styðja PASCH-skóla með fjölbreyttum menningar- og menntunarverkefnum.

MS fagnar því að vera orðinn hluti af þessu alþjóðlega samstarfi og hlakkar til þeirra tækifæra sem þátttakan skapar fyrir nemendur og skólasamfélagið.