Matsdagur 30. apríl 2026

Fimmtudaginn 30. apríl er matsdagur og þá er ekki kennt samkvæmt stundatöflu en nemendur gætu þurft að mæta í verkefni eða próf. Dagskrá matsdagsins má sjá hér að neðan og nemendur bera ábyrgð á því að vera í samskiptum við kennara og mæta á réttum stað og stund. Föstudaginn 1. maí er skólinn svo lokaður vegna verkalýðsdagsins.