Vegna veðurspár á morgun

Veðurspá er slæm fyrir morgundaginn fimmtudaginn 26. mars. Ef skólahald verður fellt niður berast nemendum og foreldrum upplýsingar um það eigi síðar en kl. 7:00 í fyrramálið. Ef ekki hefur orðið af óveðri eða ófærð verður skólahald óbreytt.

Ef veðurspá eða ófærð gengur eftir færist skólahald yfir á Innu. Hver kennari ákveður hvernig tími nemenda nýtist sem best í hverjum áfanga fyrir sig. Nemendur bera ábyrgð á að fylgjast með á Innu.

Nemendur sem búa utan höfuðborgarsvæðisins skulu fylgjast vel með fréttum og ekki vera á ferðinni þegar veðurviðvörun er í gangi.