Maja keppir fyrir hönd MS í Söngkeppni framhaldsskólanna 11. apríl

Laugardaginn 11. apríl verður Söngkeppni framhaldsskólanna 2026 haldin með pompi og prakt í Háskólabíó. Keppnin verður líka sýnd í beinni á RÚV og hefst útsendingin kl. 20:45. Fulltrúi MS í keppninni er Maja Margrét Tosik-Warszawiak sem flytur lagið I Have Nothing.

Áhorfendur geta kosið keppendur og við hvetjum öll til að kjósa okkar konu í síma 9009111.

Við óskum Maju góðs gengis og áfram MS!