Danskir gestir í MS

Á dögunum fengum við góða gesti í heimsókn frá Herlufsholm Skole og Gods. Skólinn er elsti og virtasti heimavistarskóli Danmerkur, stofnaður árið 1565, og samanstóð hópurinn af nemendum og kennurum sem mættu í dönskutíma hjá okkur í MS.

Nemendur í dönsku tóku frábærlega vel á móti gestunum. Gestirnir kynntu skólann sinn, daglegt líf á heimavistinni, auk tónlistar og íþrótta í Danmörku. Þá fengu nemendur okkar tækifæri til að smakka danskt rúgbrauð með lúxus lifrarkæfu og þorskahrognum, sem og vinsælt danskt lakkrísgúmmí. Stemningin var afar lífleg og stór hópur íslenskra nemenda tók þátt í hraðstefnumóti sem fólst í að ræða saman á dönsku um ýmis málefni.

Við þökkum gestunum kærlega fyrir komuna!