Grænfáni í fimmta sinn

Umhverfisvika fór fram í MS dagana 20.-22. apríl. Vikan var skipulögð af umhverfisnefnd skólans en í henni sitja nemendur í Grænfánaáfanga sem Kristbjörg Árnadóttir umhverfisfræðikennari hefur umsjón með.

Í áfanganum kynnast nemendur umhverfisstjórnunarkerfi sem verkefnið Skólar á grænni græn byggir á og beita áhrifum sínum í átt að aukinni sjálfbærni innan skólans og nærsamfélagsins. Áfanginn er kenndur yfir allt skólaárið og þar fara nemendur í gegnum þau skref sem til þarf til að fá Grænfánann. Vinnan nær hámarki sínu í umhverfisviku að vori þar sem nemendur standa fyrir viðburðum tengdum umhverfismálum og með Grænfánaafhendingu. 

Þann 22. apríl, sem jafnframt er Alþjóðadagur móður jarðar, afhenti Guðrún Schmidt hjá Landvernd skólanum Grænfánann í fimmta sinn. Nemendur drógu fánann að húni við mikinn fögnuð viðstaddra og gáfu svo samnemendum ís í boði Emmess í tilefni dagsins.