Menntaskólinn við Sund hlýtur alþjóðlega viðurkenningu sem PASCH‑skóli

MS er nú orðinn PASCH-skóli og fékk viðurkenningu sem slíkur miðvikudaginn 6. maí. Að PASCH standa meðal annarra Goethe Institut, Deutsche Auslandsgesellschaft og þýska sendiráðið á Íslandi.
 
Að vera hluti af PASCH skólasamstarfinu veitir nemendum fjölbreytt tækifæri til náms og alþjóðlegra samskipta. Þar má nefna þátttöku í spennandi verkefnum, aðgang að vönduðu námsefni og möguleika á dvöl eða námi í Þýskalandi. Samstarfið skapar mikilvægan grundvöll fyrir öfluga tungumálakennslu og opnar þýskunemendum greiðari leiðir að alþjóðlegu námi og tengslaneti.
 

Þýskukennarar og rektor skólans heimsóttu þýska sendiráðið þann 6. maí þar sem skólinn veitti viðtöku viðurkenningu sem PASCH skóli. Það eru sannarlega spennandi tímar framundan fyrir nám og kennslu í þýsku í MS.