MS-ingar fá styrki úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands

Sólný Helga og Enok ásamt Silju Báru Ómarsdóttur rektor HÍ
Sólný Helga og Enok ásamt Silju Báru Ómarsdóttur rektor HÍ

Tveir nýútskrifaðir nemendur Menntaskólans við Sund fengu í ár styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstarfi, listum eða íþróttum.

Styrkþegar úr MS eru Enok Hjörvarsson og Sólný Helga Sigurðardóttir. Enok hefur hafið nám í lífeindafræði og Sólný í almennri bókmenntafræði með ritlist sem aukagrein. Við sendum þeim innilegar hamingjuóskir og óskum þeim góðs gengis í náminu.

Nánari upplýsingar um verðlaunin og verðlaunahafana eru á vef Háskóla Íslands.