Í sumar tóku 30 nemendur frá Menntaskólanum við Sund þátt í námskeiðinu The Uncomfortable Expedition, sem haldið er af Oxford- og Cambridge-háskólum. Nemendurnir fóru í þremur hópum ásamt tveimur kennurum og dvöldu í níu daga í háskólaborginni Cambridge þar sem markmiðið var að stíga út fyrir þægindarammann, takast á við nýjar áskoranir og efla bæði sjálfstraust og leiðtogahæfni.

Dagskráin var þétt skipuð frá morgni til kvölds með vinnustofum fyrir og eftir hádegi, fyrirlestrum, hópastarfi og kvöldviðburðum. Frá fyrsta degi voru nemendur settir í nýjar og krefjandi aðstæður. Þeir tóku þátt í alls kyns verkefnum, kynntust nemendum víðs vegar að úr heiminum og unnu með mentorum sem voru meðal annars doktorsnemar og fyrrverandi þátttakendur námskeiðsins.

Mikil áhersla var lögð á að hver og einn setti sér persónuleg markmið og var nemendum skipað í hópa út frá þeim þar sem þeir unnu verkefni undir leiðsögn mentoranna sinna. Ferlinu lauk með lokakynningum þar sem hóparnir kynntu verkefni sín og þær lausnir sem þeir höfðu þróað á meðan á dvölinni stóð.

Nemendur fengu líka að kynnast lífinu í háskólaborginni, stýra bátum á ánni Cam, sækja ýmsa viðburði og formlegan kvöldverð við lok námskeiðsins. Þar fengu nemendur viðurkenningar og umsagnir frá mentorum sínum. Kennararnir sem fylgdu hópunum sáu nemendur vaxa og dafna á þessum níu dögum. Ferðin veitti þeim ekki aðeins innsýn í alþjóðlegt námsumhverfi heldur einnig dýrmæta reynslu sem þau taka með sér inn í áframhaldandi nám og skólastarf í MS. Markmið námskeiðsins er einmitt að þátttakendur snúi heim með aukið sjálfstraust, skýrari sýn á eigin styrkleika og nýjan kraft til að takast á við framtíðina. Vonir standa til að MS sendi aftur hóp á námskeiðið næsta sumar og verður það kynnt fyrir nemendum þegar þar að kemur.
