Kennsla fellur niður eftir hádegi fimmutdaginn 17. september vegna jarðarfarar

Kennsla fellur niður eftir hádegi í dag, vegna útfarar Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur, nemanda við skólann. Útför Arndísar Höllu fer fram í dag, 17. september, klukkan 13:00 frá Grafarvogskirkju.

Hér á eftir fara minningarorð frá rektor skólans:

Komið er að kveðjustund í kærum skóla við Sund

Sorg ríkir í skólasamfélaginu í MS vegna skelfilegs slyss. Þau eru fjölmörg sem syrgja um þessar mundir og er hugur okkar hjá þeim.

MS-ingar, bæði nemendur og starfsfólk, minnast Arndísar Höllu sem gleðigjafa, með fallega sál og bjart bros sem lýsti upp skólastofuna. Hún var gjarnan umkringd vinum sem nutu samverunnar, skemmtilegur og hugmyndaríkur sessunautur og að sögn vina hennar góð og traust vinkona sem hægt var að leita til.

Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Arndísi Höllu og fengið að feta með henni dýrmæt skref menntaskólaáranna. Minningarnar eru margar þrátt fyrir að árið urðu færri en við vildum. Fyrir okkur er Arndís enn ljóslifandi og erfitt að trúa því að hún sé horfin á braut.

Það er erfitt að trúa því að Arndís Halla eigi aldrei aftur eftir að dansa um ganga MS eða sitja við næsta borð og flissa með vinum sínum. Arndís skilur eftir sig stórt skarð hvar sem hún kom við, skarð sem erfitt er að fylla.

Fyrir hönd starfsfólks og nemenda Menntaskólans við Sund sendum við fjölskyldu Arndísar Höllu og vinum hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Arndís Halla mun alltaf eiga stað í hjarta hér.

MS mun aldrei gleyma þér.

Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor Menntaskólans við Sund