Matsdagar og starfsþróunardagur kennara

Á mánudaginn í næstu viku, þann 21. september, er starfsþróunardagur kennara. Allt skólahald fellur niður þann dag og er skólinn lokaður.

Þriðjudag og miðvikudag, 22. og 23. september, eru fyrstu matsdagar haustannar. Þá er ekki kennt samkvæmt stundaskrá en nemendur sem hafa verið boðaðir í próf eða verkefni mæta eftir því sem við á. Dagskrá matsdaga má sjá á meðfylgjandi mynd. Nemendur þurfa að gæta þess að mæta á réttum stað og stund og vera í sambandi við sína kennara ef eitthvað er óljóst. Skrifstofa skólans verður að þessu sinni lokuð á matsdögum.