Upphaf skólaársins 2026-2027 – birting stundataflna

Haustönn 2026 hefst 20. ágúst með móttöku nýnema, kynningu á skólastarfinu og tölvunámskeiði. Dagskráin hefst kl. 9 og er áætlað að henni ljúki fyrir hádegi. Nýnemar þurfa að koma með fartölvur, hleðslutæki og heyrnartól í skólann þennan dag. Einnig er mikilvægt að nemendur séu með rafræn skilríki.

Eldri nýir nemendur mæta eingöngu á kynningu kl. 9-9:45.

Stundatöflur verða birtar á INNU 19. ágúst kl. 20:00. Hægt að nálgast námsgagnalista á heimasíðu skólans Námsgagnalisti | Menntaskólinn við Sund.

Föstudaginn 21. ágúst verður skólasetning kl. 8:30 í íþróttasal skólans, í framhaldinu hefst kennsla samkvæmt stundaskrá.