Rúmlega 200 nýnemar nutu veðurblíðu í Vatnaskógi í gær í árlegri nýnemaferð. Dagskráin i Vatnaskógi var sniðin að því að nýnemar ættu mikil og góð samskipti og kynntust betur. Byrjað var á hópleik í tveimur hollum og kaffitíma þar sem boðið var upp á nýbakaðar kökur ala Vatnaskógur.
Fram að kvöldmat var boðið upp á fótbolta á íþróttavellinum, bátafjör þar sem sum freistuðu þess að vera dregin á gúmmíbanana út á vatnið á meðan önnur létu sér nægja að fara á ára- eða hjólabát. Í boði var að fara í heitapotta við íþróttahúsið og hina ýmsu boltaleiki bæði úti og inni. Nýnemar kepptu í fótbolta á móti eldri nemendum og voru engin takmörk á fjölda leikmanna í hvoru liði.
Um 40 mínútur tók að fóðra mannskapinn með kjúklingaborgurum og var tekið vel til matarins. Eftir kvöldmat tók stjórn nemendafélagsins (SMS) við dagskránni, þar sem skipt var í lið og farið í ratleik, sungið, dansað og farið í leiki. Ferðinni lauk síðan með grilluðum sykurpúðum og rómantískri heimferð í ágúströkkrinu. Bæði nýnemar og nemendastjórn sýndu í verki að MSingar eru frábærir krakkar sem gera MS að skemmtilegum skóla.





