Stundatöflur haustannar eru nú tilbúnar í INNU

Stundatöflur haustannar eru nú tilbúnar í INNU.

Töflubreytingar í Innu eru opnar til kl. 15:00 föstudaginn 21. ágúst.

Töflubreytingar á skrifstofu skólans eru opnar frá klukkan 11:00 til 16:00 fimmtudaginn 20. ágúst. 

Ekki er hægt að koma á skrifstofu skólans föstudaginn 21. ágúst og óska eftir töflubreytingu því kennsla fer fram samkvæmt stundatöflu þann dag. 

Athugið að taka mið af undanförum en nemendur þurfa að ljúka undanfara til að komast í næsta áfanga í mörgum tilfellum (sjá skipulag áfanga á heimasíðunni).

🔗Leiðbeiningar um hvernig töflubreytingaóskir eru framkvæmdar má finna hér.

Hópar eru mjög þétt setnir og því lítið svigrúm til töflubreytinga. Á meðfylgjandi mynd er áföngum raðað eftir stokkum sem þeir eru kenndir í og geta nemendur sem þurfa að óska eftir töflubreytingum nýtt sér stokkatöfluna til leiðsagnar.