Fardagur 21. maí 2026

Það var bæði hátíðleg og gleðileg stund í Menntaskólanum við Sund í gær þegar útskriftarnemar kvöddu skólann á fardegi, síðasta kennsludegi vorannar. Nemendur mættu prúðbúnir og á kveðjuathöfn á sal fluttu fulltrúar þeirra ræður þar sem litið var um öxl og skólafélögum þakkað fyrir skemmtileg ár í MS.

Í ræðunum rifjuðu nemendur upp minningar um skemmtileg ár, töluðu um vináttubönd sem myndast hafa í skólanum, sögðu skemmtisögur úr skólalífinu og lýstu þakklæti í garð kennara, starfsfólks og samnemenda. Ræðumenn voru Ásdís Halla Helgadóttir fyrir hönd útskriftarhóps á ES-línu, Toby Gísladóttir fyrir hönd starfsbrautar, Jóhann Grétarsson fyrir HS-línu, Lovísa Ósk Sveinsdóttir fyrir LE-línu og Þráinn Gíslason fyrir FS-línu.

Að lokum æfðu nemendur skólasönginn og stúdentasönginn Gaudeamus Igitur undir stjórn Lilju Daggar íslenskukennara, áður en skálað var í eplasíder í garðinum í blíðskaparveðri.

Við þökkum útskriftarnemum fyrir samveruna í MS og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni.