Brautskráning vorannar 30. maí 2026

Það var mikill gleðidagur í MS í dag þegar 159 nemendur brautskráðust við hátíðlega athöfn í Háskólabíó. Alls luku 47 námi af líffræði- og efnafræðilínu, 17 af eðlisfræði- og stærðfræðilínu, 62 af hagfræði- og stærðfræðilínu og 27 af félagsfræði- og sögulínu. Sex nemendur útskrifuðust af starfsbraut og er þetta fyrsti hópurinn sem brautskráist af starfsbraut í sögu skólans.

Dúx skólans var Enok Hjörvarsson, nýstúdent af líffræði- og efnafræðilínu, með meðaleinkunn 9,09. Semídúx var Freyja Dís Hreinsdóttir, nýstúdent af félagsfræði- og sögulínu, með meðaleinkunn 8,9. Að auki hlutu nokkrir nemendur verðlaun fyrir góðan árangur í námi og fyrir þátttöku í félagsstörfum.

Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor skólans, sagði í ávarpi sínu að árangur í námi byggist á virkri þátttöku, úthaldi og ábyrgð nemenda en að stuðningur foreldra skipti einnig miklu máli. Rektor hrósaði bæði nemendum og kennurum fyrir dugnað og þrautseigju og nefndi sérstaklega góðan árangur í lokaverkefnum og fyrirtækjasmiðju. Að lokum hvatti hún útskriftarnema til að taka frumkvæði og móta eigin leið í lífinu með því að stíga skrefin sjálf og nýta þau tækifæri sem bjóðast.

Lovísa Una Bryngeirsdóttir, fráfarandi ármaður Skólafélags MS, flutti ræðu fyrir hönd útskriftarnema. Lovísa sagði tímann í MS hafa einkennst af góðum minningum, sterkri vináttu og frábæru félagslífi. Hún þakkaði kennurum, fjölskyldu og samnemendum fyrir stuðning og hvatti útskriftarnema til að vera stolta af árangri sínum og horfa bjartsýna fram á veginn.

Við brautskráningu í ár veitti Tjarnarsjóðurinn 200.000 kr. styrk til þátttöku í Oxbridge-sumarnámskeiði á næsta ári. Í sumar fer í fyrsta sinn hópur nemenda úr MS í verkefnið The Uncomfortable Expedition, sem er samstarfsverkefni Oxford og Cambridge háskólanna, sem veitir nemendum einstakt tækifæri til að kynnast alþjóðlegu námsumhverfi.

Tveir nemendur fluttu tónlistaratriði á athöfninni, þær Ingibjörg Hafdís Gautadóttir sem söng og Elsa María Indriðadóttir sem lék á píanó. 

Kór starfsfólks og útskriftarhópurinn flutti skólasöng MS og stúdentasönginn, Gaudeamus Igitur, við undirleik Lilju Daggar Gunnarsdóttur íslenskukennara og kórstýru.

Við óskum öllum útskriftarnemum og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju með þennan merka áfanga og þökkum þeim góð kynni og ánægjulegt samstarf í MS.

Myndir tók Sigurjón Ragnar / srphotos.