MS orðinn UNESCO skóli

Menntaskólinn við Sund hefur hlotið viðurkenningu sem UNESCO-skóli og er nú hluti af alþjóðlegu neti skóla sem vinna að fræðslu um starfsemi Sameinuðu þjóðanna, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, mannréttindi, frið og alþjóðasamvinnu.

UNESO skólar vinna markvisst með þessi þemu, taka þátt í verkefnum á borð við Heimsins stærstu kennslustundina, halda upp á alþjóðlega daga SÞ og skipuleggja viðburði tengda málefnum á borð við jafnrétti og sjálfbærni. Einnig skila UNESCO skólar árlegri skýrslu um starfið.

Viðurkenningin er mikilvægur gæðastimpill og felur í sér aukin tækifæri til alþjóðlegs samstarfs, aðgang að fjölbreyttu námsefni og þátttöku í verkefnum og ráðstefnum erlendis. Hún styrkir jafnframt áframhaldandi þróun skólastarfs MS með áherslu á ábyrgð, víðsýni og virka þátttöku nemenda í alþjóðlegu samhengi.