MS sækir um að verða UNESCO-skóli

Nemendur í Grænfánaáfanga skipulögðu daginn og buðu upp á köku.
Nemendur í Grænfánaáfanga skipulögðu daginn og buðu upp á köku.

Í vetur er MS að sækja um að verða UNESCO-skóli. Í því felst að samkomulag og samvinna er á milli skólans og UNESCO þar sem skólinn innleiðir verkefni tengdum þremur meginþemum UNESCO-skóla sem eru:

  • Alþjóðleg borgaravitund og menning friðar og ofbeldisleysis
  • Sjálfbær þróun og sjálfbær lífsstíll
  • Þvermenningarlegt nám, virðing og skilningur á menningarlegum fjölbreytileika og arfleifð

UNESCO-skólar skuldbinda sig m.a. til að halda upp á, á hverju skólaári, að minnsta kosti tvo alþjóðlega daga sem Sameinuðu þjóðirnar hafa skilgreint, með þátttöku alls skólasamfélagsins. Miðvikudaginn 4. mars héldum við upp á annan af þeim alþjóðadögum en það er alþjóðadagur félagslegs réttlætis. Dagurinn er reyndar 20. febrúar, þá voru hjá okkur annarskil, en þar sem verkefnið er unnið samhliða Grænfánaverkefni skólans var ákveðið að velja daga sem skarast á en í eitt þema sem unnið er með í Grænfánanum er hnattrænt réttlæti. Þessi hugtök skarast töluvert þó annað fjalli um réttlæti innan samfélaga en hitt réttlæti milli landa og þjóða.

Nemendur skipulögðu daginn með þátttöku kennara og samþykki rektors og var ákveðið að útbúa fræðsluefni fyrir skólasamfélagið sem bæði fengi að rúlla á skjáum í skólanum og sem yrði kynnt fyrir nemendum í miðstokki með aðstoð kennara. Í hádeginu var svo boðið uppá köku sem féll vel í kramið hjá nemendum.