Brautskráning vetrarannar 6. mars 2026

Nýstúdentar úr Menntaskólanum við Sund á vetrarönn 2025-2026
Nýstúdentar úr Menntaskólanum við Sund á vetrarönn 2025-2026

Brautskráning vetrarannar fór fram í Menntaskólanum við Sund föstudaginn 6. mars. Að þessu sinni voru sex nemendur brautskráðir frá MS. Athöfnin var stutt og óformleg en engu minna hátíðleg enda alltaf stór stund þegar nemendur ljúka stúdentsprófi. Ayham Abdlkalek Alzoer, nýstúdent af ES-línu, hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur. Innilegar hamingjuóskir, kæru nýstúdentar!