Leikfélagið Thalía kom, sá og sigraði með FÚTLÚS

Leikfélagið Thalía sýndi á dögunum söngleikinn Fútlús í Hlégarði og fóru nemendur á kostum í sýningunni undir leikstjórn Ásgríms Geirs Logasonar. Sýningin einkenndist af miklum krafti og skein leik-, söng- og dansgleðin í gegn frá upphafi til enda.

Áhorfendur tóku sýningunni gríðarlega vel og uppselt var á allar sýningar, sem er glæsilegur vitnisburður um áhuga og stuðning við leiklistarstarf MS-inga.

Skólinn óskar öllum sem komu að sýningunni innilega til hamingju með frábæran árangur!