Gott silfur er gulli betra

Morfís lið MS: Ásgeir Máni, María Sól, Agla Rut, Alfreð Gauti og Vigdís Elísabet. Á myndina vantar N…
Morfís lið MS: Ásgeir Máni, María Sól, Agla Rut, Alfreð Gauti og Vigdís Elísabet. Á myndina vantar Njálu Rún.

Lið MS kom, sá en sigraði því miður ekki í úrslitum MORFÍs sem fóru fram á Hótel Hilton á miðvikudagskvöld. Ræðufólkið okkar stóð sig með afburðum vel, bæði söng og kvað vísur upp í pontunni þar sem þau tókust á við það erfiða verkefni að mæla með ritskoðun.

Versló tók gullið að þessu sinni en gott silfur er gulli betra eins og spakmælið segir, og MS fór heim með silfrið. Vigdís Elísabet úr ræðuliði MS fékk hvorki meira né minna en þrjá bikara fyrir að hafa verið ræðumaður kvöldsins í viðureignum vetrarins. Ræðufólk kvöldsins í liði MS voru Ásgeir Máni, María Sól og Vigdís Elísabet og liðsstjóri var Agla Rut.

Við óskum Verslingum til hamingju með gullið og óskum MORFÍs liði MS til hamingju með stórkostlegan árangur í vetur!