Innritun lokið

Nú er innritun nýnema í Menntaskólann við Sund lokið og hafa verið innritaðir 227 nemendur á 1. ár, 160 nemendur á námslínur félagsfræðabrautar, 56 nemendur á námslínur náttúrufræðibrautar og 11 nemendur á starfsbraut. Í skólanum verða 737 nemendur í haust og er skólinn fullskipaður.

Við úrvinnslu umsókna var unnið eftir fyrirfram tilgreindum verkferli um inntöku nýnema. Umsækjendur um nám í Menntaskólanum við Sund sem ekki fengu samþykkta skólavist geta skráð sig á biðlista HÉR og haft verður samband við viðkomandi í ágúst ef pláss losnar og hægt er að veita skólavist.

Nýnemum verður sendur tölvupóstur með helstu upplýsingum á næstu dögum en einnig má finna upplýsingar um upphaf næsta skólaárs  HÉR. Starfsfólk MS hlakkar til að taka á móti nýnemum þann 20. ágúst næstkomandi. Skrifstofa MS verður lokuð frá og með 24. júní til og með 4. ágúst. Við opnum aftur miðvikudaginn 5. ágúst kl. 10.

Gleðilegt sumar!