Skrifstofa MS verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með 24. júní til og með 4. ágúst. Skrifstofan opnar aftur kl. 10:00 miðvikudaginn 5. ágúst 2026.
Eldri nemar við skólann hafa fengið greiðsluseðil fyrir innritunargjöld haustannar sendan í netbanka. Gjalddagi eldri nema er 11. júní og eindagi er 2. júlí. Nýnemar og aðstandendur þeirra fá póst frá skólanum á næstu dögum og nánari upplýsingar um greiðslu skólagjalda. Ef skólagjöld eru ekki greidd á tilskildum tíma lítur skólinn svo á að nemandi þiggi ekki skólavist. Mikilvægt er að tilkynna skólanum strax með tölvupósti á netfangið msund@msund.is ef nemandi ætlar ekki að þiggja skólavist í MS. Með greiðslu skólagjalda gengst nemandi einnig undir skólareglur sem finna má á heimasíðu skólans.
Skólastarf haustannar hefst samkvæmt skóladagatali fimmtudaginn 20. ágúst kl. 9:00 með móttöku nýnema, kynningu á skólastarfinu og upplýsingatækninámskeiði fyrir nýnema. Nýnemar þurfa því að koma með tölvur í skólann þann dag.
Kennsla á haustönn hefst svo samkvæmt stundaskrá föstudaginn 21. ágúst. Stundatöflur birtast í Innu fyrir upphaf kennslu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi fartölvu eða sambærilegt tæki til afnota í skólanum og til að sinna heimanámi. Nemendur þurfa rafræn skilríki til að komast í Innu og mikilvægt að útvega slík áður en skólinn hefst.
Í fyrstu kennsluviku verður farið í nýnemaferð í Vatnaskóg, dagsferð. Ferðin er skipulögð af skólanum og nemendafélagi skólans. Nýnemaferðin er valkvæð og nemendur taka þátt í kostnaði við ferðina. Að gefnu tilefni benda stjórnendur skólans á að hvorki skólinn né nemendafélagið standa fyrir félagslífi í sumar og engir viðburðir verða fyrr en skóli hefst í ágúst.
Upplýsingafundur fyrir foreldra nýnema verður haldinn mánudaginn 24. ágúst kl. 17.
Gleðilegt sumar!