Námsmatssýning vetrarannar 19. febrúar 2026

Nú er vetrarönn að ljúka og lokaeinkunnir áfanga hafa verið birtar í Innu. Námsmatssýning vetrarannar fer fram fimmtudaginn 19. febrúar. Á námsmatssýningu gefst nemendum tækifæri til þess að skoða námsmatið og gera athugasemdir. Fyrirkomulag námsmatssýningarinnar verður með tvenns konar móti: annars vegar í skólanum og hins vegar í gegnum TEAMS. Nemendur skulu því kynna sér upplýsingarnar hér mjög vel.

Námsmatssýning á Teams kl. 10-12 - 🔗 Bókið tíma hér 🔗

  • Trine - danska
  • Vignir - enska
  • Sólveig - efnafræði
  • Kristjana - þýska
  • Karen - líffræði
  • Brynhildur - saga
  • Örn - stærðfræði

 

Nemendur bóka sér viðtalstíma – sjá bókunarhlekk hér fyrir ofan. Þegar tíminn hefur verið bókaður fær nemandinn staðfestingu í tölvupósti. Í tölvupóstinum er Teamshlekkur fyrir viðtalstímann – sjá skýringarmynd hér að neðan: