Úthlutun úr Sprotasjóði 2025

Menntaskólinn við Sund hlaut styrk í úthlutun Sprotasjóðs 2025 fyrir verkefnið Grípum tækifærið - gervigreind í skólastarfi. Mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson, og formaður stjórnar sjóðsins, Bragi Þór Svavarsson, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu miðvikudaginn 11. júní.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga og var gervigreind eitt af áherslusviðum sjóðsins í ár.

Verkefnið Grípum tækifærið felur í sér að þróa og halda námskeið og vinnustofu um gervigreind fyrir kennara skólans. Markmiðið er að auka hæfni kennara til að nýta gervigreindartækni til gagns í námi og kennslu og með því stuðla að færni nemenda í ábyrgri notkun gervigreindar. Verkefnið er áframhald á vinnu sem þegar er hafin í MS, en á vorönn var nýr áfangi kenndur í fyrsta sinn þar sem nemendur lærðu að nýta gervigreind til gagns í sínu námi.

Við þökkum Sprotasjóði fyrir styrkinn sem mun sannarlega nýtast vel í áframhaldandi þróunarstarf í MS.

Á vefsíðu Rannís má lesa meira um úthlutun úr Sprotasjóði 2025.